Tuesday, April 29, 2008

Rykmengun á Reykjavíkurstrætum

Mikið hefur verið talað um mengun í höfuðborginni síðast liðinn vetur og enn heldur umræðan áfram. Met eru slegin í mengun og virðist sama hvort um málið fjalla pólitíkusar Reykjavíkur, heilbrigðiseftirlit borgarinnar, umhverfispostular, eða blaðamenn, menn virðast sjá aðeins einn mengunarvald: bílinn, og þá helst þá hluta hans sem veita hvað mest öryggi í glærahálku—nagladekkin. Einnig er þeim kennt um slit gatna.

Á sama tíma hef ég tekið eftir einu: Götur Reykjavíkur (og jafnvel fleiri sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) eru nánast aldrei hreinsaðar—hvorki sópaðar né spúlaðar. Hvar í hinum vestræna heimi þekkist annar eins sóðaskapur?

Maður tekur vel eftir þessu þegar ekið er á eftir bílum sem fara aðeins út í kantinn (rennusteininn). Þá sópast rykið hátt í loft upp, og ef logn er myndar sallinn smám saman mistur. Mest er þetta áberandi, þegar ekið er á eftir stórum vörubílum og "treilerum". Mökkurinn getur þá orðið svo mikill að maður neyðist til að drepa á loftræstingu inn í bílinn!

Ég hef líka tekið eftir öðru. Slit á götum fer ekki svo mikið eftir því hversu margir aka á nagladekkjum, heldur fyrst og fremst því hversu oft götur eru saltaðar. En þá koma náttúrulega naglar og aðrir harðir (harðkorna) hlutir mjög mikið inn í myndina. Væri ekki nær að salta sjaldnar og að leyfa fólki að aka á sínum nagladekkjum? Hvers vegna það? Hvers vegna ekki að banna nagladekk?

Ég vinn á vinnustað í Kópavogi, þar sem bílastæði, sem reyndar eru allt of fá eins og víðast hvar þar og Reykjavík reynir að herma eftir, eru sum hver í allnokkrum halla. Síðast liðna tvo vetur hef ég nokkrum sinnum orðið vitni að að bílar, sem hefur verið lagt og gengið vel frá í gír og handbremsu, hafa lagt af stað sjálfir, reyndar verið hjálpað af nokkrum vindi stundum, og jafnvel hafnað á næsta bíl. Það er sammerkt þessum bílum að enginn var á nöglum, en einmitt glæra hálka til staðar.

Væri ekki nær að hvetja fólk til að vera á tryggilega búnum bílum, heldur en að vera með þetta sífellda væl út af nagladekkjum?

Hvernig væri nú að höfuðborgarhrepparnir tækju sig saman um að sópa og spúla reglulega (spúla t.d. þegar rignir) í eitt ár og sjá hvort mengunarmælingar sýna ekki lægri tölur? Ég trúi því varla að þetta sé með ráðum gert—að ráðamenn vilji beinlínis meira ryk til þess að geta haft gerfiástæðu til þess að banna nagladekk. Trúir þú því?

2 comments:

Unknown said...

Nánast er ég sammála þessu kæri tengdapabbi, því nagladekkinn gera sinn skaða og eru of margir sem eru of lengi á þeim. En hitt er annað mál að það virkilega að taka á í hreinsunarmálum borgarinnar, og hefur götusópun verið alvarlega vanrækt.

mbk,

Böðvar Björgvinsson said...

Ég sé á vef borgarinnar, að þeir ætla að gera einhverja bragarbót í sumar -- segjast reyndar hafa byrjað í apríl, en veturinn hafi verið "óhagstæður" til þessara verkefna!